| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Að kveða er mér kvöl og þraut

Höfundur:Höfundur ókunnur


Tildrög

Það lítur út fyrir að höfundur þessarar ferskeytlu, sem Guðlaugur Sigurðsson telur vera eftir Jón S. Bergmann (kv.s. VI 68), hafi ekki ort með glöðu geði.

Skýringar

Ókunnur höfundur
Að kveða er mér kvöl og þraut,
kvæðin læt þó flakka.
Eins og þegar öskrar naut,
undir moldarbakka.