| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2


Tildrög

Í stúku nokkurri þótti æðsti templarinn vera hálfgerður misindismaður en honum höfðu hlotnast flest eða öll heiðursstig er reglan hefur yfir að ráða. Um hann orti einhver óþekktur maður þessa ferskeytlu.

Skýringar

Af engum glæpum er hann frí,
engan þó hann drepi.
Stigamanna stiga í
stendur í hæsta þrepi.