| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Þokan dylur allan ís.
Ísinn hylur fjörðinn.
Vonlaust spilar vorsins dís.
Vantar yl á svörðinn.

Út við sjó er voði vís.
Værð og ró á fjörum.
Húnaflói hulinn ís.
Harpa þó á förum.

Sól á græðis gengur vit.
Gulli klæðist ögur.
Ber frá glæðum bjartan lit
brúðarslæða fögur.