| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Vetur kóngur kominn er.
Kóngi ber að heilsa slíkum.
Á hans valdi erum vér.
Okkar hugsun þó ei flíkum.

Bið ég þess að blessun færi
byrjuð vetrartíð.
Andans göfgi okkur næri
öldin fyrr og síð.

Drottinn blessi okkur alla.
Aukist farsæld mest.
Úti á sjó og upp til fjalla
öllum líði best.