| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Halda veginn höldar tveir.
Harla ólíkir eru þeir.
Setja traustið sinn á hvað
svo þeir fylgjast ekki að.

Aldurhnignir eru þeir.
Enginn veit hvor fyrri deyr.
En eitt er víst að æfin fer
öðrum þeirra að styttast hér.

Annar treystir á sig mest.
Allt hann þykist vita best.
Hinn á Guði hefur traust.
Hans er traustið endalaust.