| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Segja verður fyrst þar frá
frú, er átti reisugt bú.
Eyjur hringa tvær að tjá
trúar hélt á bænum sú.

Gandálfs skal hér skútumynd
skunda láta Týs á sund.
Landa beltis loga strind
lundhýr hlýði mér um stund.

Yggjar sjó ég út á legg
uggandi um Dvalins kugg
Hyggjudugur dvínar segg
duggan þegar fer á rugg.