| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2
Í draumi komst þú nú í nótt til mín.
Og náttkjóll var það eina sem þú barst.
Ég leit þig hrifinn eins og æðri sýn
svo engilbjört og mjallahvít þú varst.

Af enni þér og æskuljósri kinn
svo undarlega hvítum bjarma sló.
Sem töfrar gripið hefðu huga minn.
Ég held að þetta viti á meiri snjó