| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Unglingarnir bæi byggja

Bls.Dvöl 1917.


Tildrög

Eignað sr. Hallgrími.
Unglingarnir bæi byggja,
beinin teygja,
seinna fallnir, síðan liggja
seinast deyja.

Steyta kálfa, hlaupa um hóla
hoppa, rása,
seinna skjálfa, síðan róla
og síðast blása.

Listagjarnir, lokkaskornir
leika núna,
seinna farnir, svo útbornir
seinast fúna.