Ragnar A. Magnússon segist eitt sinn hafa verið á ferð með Emil Jónssyni og Skúla Guðmundssyni alþingismönnum norður í land. Er halla tók norður af Holtavörðuheiði segir Ragnar að Skúli hafi kveðið vísuna,
Kátur lækur ofan að út í fjörðinn streymir. Gaman væri að vita hvað vegfarandann dreymir.