Svarað bréfi | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Svarað bréfi

Fyrsta ljóðlína:Þú grátbiður mig að gleyma þér
bls.338
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Þú grátbiður mig að gleyma þér.
Það get ég ei, þó ég vildi.
Því allt, sem að best og bjartast er
það bendir mér á þitt gildi.
- Og elskan hún hefur ábyrgst mér
þig aldrei ég missa skyldi.
2.
Þú heilsar mér sérhvern heiðan dag
þig heyri´ eg í lækjar kviki
Ég finn þig í söng og fögrum brag
sem faðmur mig örmum lyki.
Ég sé þig við hvert eitt sólarlag
í síðasta geislabliki.
3.
Og jafnvel þótt augun sviptust sýn
þá sérðu það, vinur minn góði
fyrst ódauðleg sál er eiga mín
þá ert þú í tryggum sjóði.
Það máist ekki´ af henni minning þín
sem mörkuð er tárum og blóði.
4.
Ef Drottinn sendir mér blund á brá
þá blæða ekki hjartasárin.
En samt ég ekki´ einu sviptast má
þó svifi úr minni árin:
sælunni mestu, er sorgin á
að sjá þig í gegnum tárin.
5.
Þó heimili byði heimurinn mér
við hefðar og nautna brunna
að meta þá tign sem maklegt er
það myndi ég ekki kunna.
- En eilífðin ein vinnst að þakka þér
að þú hefur kennt mér að unna.