Stapajarlinn kvaddur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Stapajarlinn kvaddur

Fyrsta ljóðlína:Jói er hniginn, fold að felldur
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Jói er hniginn, fold að felldur
fjörs í vígi lengi stóð.
Þá var tiginn andans eldur
unnin stigin mörg og góð.
2.
Ljóð af munni mælti hraður
mörg þá spunnin fléttan var.
Valinkunnur vísnamaður
veldisbrunnur kveðskapar.
3.
Fáir liðar svo vel sannir
sinntu miðum Braga hér.
Hann í friði eftir annir
inn um hliðið gullna fer.
4.
Þar mun Pétur státinn standa
stökur meta í æviskrá.
Fer þar betur um þann anda
er aldrei fetin mældi smá.
5.
Þá í svari sigur gerður
sannar hvar hann lifir hlýr.
Jói var og Jói verður
jafnan þar sem stakan býr.


Athugagreinar

https://www.facebook.com/photo?fbid=840244223416113&set=pcb.840244620082740