Grjótstekkur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Grjótstekkur

Fyrsta ljóðlína:Ofar Akratorfu
bls.IV 251
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Ofar Akratorfu
er ofurlítið tún
vin á gráum grundum
gilsins undir brún.
Búsmali oft hér unir
við ilminn frá kjarnarót
gráðugur tungu teygir
töðugresinu mót.
2.
Þarna áður hún amma
átti sér lítinn bæ
einsetukona kölluð
kastaði fáu á glæ.
Eina átti hún kúna
og ellefu vænar ær
heyjaði sjálf og hirti
með hugulsemi þær.



Athugagreinar

Grjótstekkur er 19. aldar húsmannsbýli og beitarhús, byggt á fornu bæjarstæði langt fyrir ofan Akrabæina.