Haustljóð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Haustljóð

Fyrsta ljóðlína:Eitt af því sem íslensk þjóð
Viðm.ártal:≈ 1950
Tímasetning:1950
1.
Eitt af því sem íslensk þjóð
á og lítt af gumar
eru haustsins erfiljóð
eftir vor og sumar.
2.
Sá sem hausti hörpu gaf
hana bjó með töfrum.
Ég held hún taki öllum af
Íslands skáldajöfrum.
3.
Samt er ei gott að segja um það
svo er úr mörgu að velja.
Sumir finna öllu að
aðrir stjörnur telja.