Íslendingar dæmi okkar orð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Íslendingar dæmi okkar orð

Fyrsta ljóðlína:Illt er af henni öfund pínast
bls.19.6.1913
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Illt er af henni öfund pínast
illt að bera sinni leitt,
illt að vilja einatt sýnast
aldrei þó að vera neitt.
2.
Þig við hefja þarf ég tal
það skalt sjá og finna
ekki tína orðin skal
eg úr bókum hinna.
3.
Þín er vizka þar ei djúp
því að stærri mæða
er gestrisni í hæðnishjúp
hrökklast við að klæða
úr okkar hetju kvæðum.
4.
Að svo skulir illa fer
eyða kröftum linum
þjóðar prýði því hún er
þekkt af öllum hinum.
5.
Að henni hnýta ekki ber
er það skoðun lægri
hún er dygð, sem heldur sér
heims að enda dægri.
6.
Eftir allt þitt skálda skrum
og skilning þinn á kvæðum
armur dregur orðin sum
úr okkar helgu fræðum.
7.
Þar er sálar sjónin sljó
og sómakraftar linir
biblíuna betur þó
brúka flestir hinir.
8.
Sýnist mér það sómamorð
og sóðalegust vinna
biblíunnar óbreytt orð
í háðglósur þinna.
9.
Svo það virðum sá sem hér
sannleikskyrðum brjálar
trúmarksvirði ei að er
öll hans hirðing sálar.
10.
Hvað sem talað um þig er
eða fært í letur
sjálfur lýsir þarna þér
þúsund sinnum betur.
11.
Við þitt blakka vinnuspil
visku sent af sloti
ganga einnig Gröndals til
gripur í orðaþroti.
(Sjá bls. 51 Heljarslóðar orrustu.)
12.
Það er villtast vizkubúr
í vanþekkingar höfum
sem að dregur dárið úr
dauðra manna gröfum.
13.
Það er leitt að lesa blöð
Lárus vilt þú neita?
þar óheimildar orðaröð
ósannindin skreyta.
14.
Sætt er að veita sjálfs sín brauð
sanngjörn þörf ef styður
en bjóða mönnum annara auð
á því fer nú miður.
15.
Annara taktu aldrei hér
umtals vertu frómur
þau ráð skaltu þiggja af mér
þjóðskáldanna dómur.
16.
Ekki meira bera á borð
betur hygg eg sæmi
þá er best að okkar orð
Íslendingar dæmi.


Athugagreinar

Til herra L. Guðmundssonar