Hvatning | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Hvatning

Fyrsta ljóðlína:Láttu þá ekki hnoða
bls.146
Viðm.ártal:≈ 0
Láttu þá ekki hnoða
úr þér vaxbrúðu
í tískulitunum.

Láttu þá ekki móta
hug þinn eða hjarta
í kökuformi.

Láttu þá ekki vefja
þig í vaðal ástarinnar.

Vertu þú sjálf
snjöll og sterk.