Arnljótur Ólafsson erfiljóð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Arnljótur Ólafsson erfiljóð

Fyrsta ljóðlína:Flestum varstu fremri að listum
Viðm.ártal:≈ 0
Flestum varstu fremri að listum
fræðibaldur þinnar aldar!
Fæstir menn með fyllri þroska
fóru á þing með lýðmæringum.
Engan vissi ég orri tungu
unna meira né snilli kunna
(yndi þitt var allt að grunda)
orðalags á ströndu Norðra.

Kosti þína þekktu fæstir
þína bresti vissu flestir;
djúp að kanna mikilmenna
megnar aldrei fjöldinn þegna.
Þína sönnu sæmdarmenning
sýndi lýðum húss þíns prýði.
Yndi var á öllum fundum
orða þinna töfraforði.