Úr Njólu | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Úr Njólu

Fyrsta ljóðlína:Meistari himna mikli þú
bls.48
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Meistari himna mikli þú
mig þinn andi hneigi
svo hugurinn nokkuð hugsa nú
um hátign þína megi.
2.
Nú er fögur næturstund
nú ber skrautið frána
þakið bláa, er þandi mund
þín yfir höllu mána.
3.
Lít eg sveima hæð og hyl
herinn alskínandi;
því vill hefjast himna til
hugurinn lofsyngjandi.
- - -
4.
Meðan þessi ævin er
eins og börn vér hjölum
æðra mál þú ætlar mér
uppí dýrðarsölum.
5.
Lífið öllu langt af ber
lífi duftið þjónar
lífi birtan löguð er
líf sér haminn prjónar.
6.
Lít, ó maður, lífsins tign
lausnar þakkir tjáðu
opna hugskot augun skyggn
elsku guðs, nú sjáðu.