Miðnætti | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Miðnætti

Fyrsta ljóðlína:Yfir haf ofar heiðum
bls.266
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Yfir haf, ofar heiðum
fer hljóðvana blær
hátt á ljósvakans leiðum
deyr ljóðtónn hver skær.
2.
Sofa rósir í runnum
við rökkurmjúkt lín.
Sólin andvaka á unnum
í útnorðri skín.