Reykjavík | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Reykjavík

Fyrsta ljóðlína:Ó, borg mín, borg, ég lofa ljóst þín stræti
bls.98
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Ó, borg mín, borg, ég lofa ljóst þín stræti
þín lágu hús og allt sem fyrir ber.
Og þótt svo tárið oft minn vanga væti
er von mín einatt, einatt bundin þér.
Og hversu sem að aðrir í þig narta
þig eðla borg, sem forðum prýddir mig
svo blítt, svo blítt sem barnsins unga hjarta
er brjóst mitt fullt af minningum um þig.
9.
Þótt ávallt sértu einhvern veginn skrýtin
og ofurlítið stolt af þinni sól
ég geri mig í góðu við þig lítinn
og gala nafn þitt vítt um heimsins ból.
Um síð, um síð ég kem og krýp þér aumur
og kyssi jafnvel hörðu strætin þín
því af þér fæddist lífs míns ljósi draumur
eitt lítið barn - og það var ástin mín.
10.
Því um það bil, sem illar vættir sóttu
á minn skrokk með djöfullegar klær
hún kom til mín sem draumur á dimmri nóttu
með drengjakoll og leir um berar tær.
Og ennþá hlýnar hugur eins af kæti
ef hugur þess nær tengd við barnið sitt;
því mun ég, borg mín, lofa lengst þau stræti
sem liggja á víxl í gegnum hjarta mitt.