Árið 1918 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Árið 1918

Fyrsta ljóðlína:Þjóðin var á öldum áður
bls.121
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Þjóðin var á öldum áður
ánauðar í helsi bundin.
Illt er að vera öðrum háður
oft þá voru lokuð sundin.
2.
Þannig lifði langa daga
lítil þjóð á norðurhjara.
Af því hermir okkar saga
útlendir með völdin fara.
3.
En fyrir hartnær hundrað árum
hátt var siglt í okkar landi
þar var tekið þungt á árum
þá var leystur mikill vandi.
4.
Ánauðar var oki hrundið
íslensk þjóð úr kútnum rétti.
Þá var stjórnarfrelsi fundið
fagnað vel og öllum létti.
5.
Verndum ætíð fengið frelsi
sem feður okkar ruddu slóða.
Eftir ánauð, höft og helsi
hafði Ísland líf að bjóða.
6.
Erlent veldi ennþá lokkar
enn er dansað gullið kringum.
En látum aldrei landið okkar
í lúkurnar á útlendingum.