Bernskunætur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Bernskunætur

Fyrsta ljóðlína:Er nóttin nálgast
bls.66
Viðm.ártal:≈ 0
Er
nóttin nálgast
hlusta ég á raddir sumarsins
raddir æsku minnar;

ég hlusta
á sjóinn hjala við ströndina
hvísl gamalla elskenda
sjóinn með sína ertandi rödd;
og strandölduna
gæla við svarta fjörusteina
svarta fjörusteina.

Ég hlusta
á jökulána senda sjónum tóninn
krefjandi kossa
kossanna hans
eftir þessa löngu för
frá fjarlægum hvítum jöklum
loksins komin að njóta atlota hans;
að sameinast köldum öldum
hans bláu köldu öldum.


Ég hlusta á samtal þeirra
langt inn í nóttina bjarta við norðurhaf
gegnum opinn glugga æsku minnar
sem lét heyra raddir ytra
raddir ytra
þegar dagsljósið skein inn í nóttina
og svefninn
svefninn lét löngum bíða eftir sér . . .