Ísavorið 1968 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ísavorið 1968

Fyrsta ljóðlína:Þú Guð vors lands
bls.17
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Þú Guð vors lands
ó, lát þú loftin hlýna.
Lát þína sól á vorar byggðir skína.
Lát ilman blóma
anga um landsins hlíðar.
Lát elda vorsins
brenna heitar, víðar.
2.
Lát hugans blómstur
hlýna, fríkka, stækka.
Lát hrokans gróður
visna, grotna, smækka.
Lát þína speki
og hreinleik heiminn fylla.
Lát helgar dyggðir
þekja spor þess illa.
3.
Þá helgast allt
og hugans blómstur dafna.
Þá helgast allt
og fólkið nær að safna
þrótti og vilja
það hið góða að rækja.
Og þá er fyrst
á brattann létt að sækja.