Leit | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Leit

Fyrsta ljóðlína:Lengi hefur þú leitað
bls.194
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Lengi hefur þú leitað
að lind sem er svöl og tær
að björtum kliðandi brunni
sem biði þín silfurskær.
2.
Í nótt flugu fuglar til suðurs
og fylltu myrkrið þyt.
Nú gránar haginn af hélu
og heiðin ber rauðan lit.
3.
Enn áttu ófundinn brunninn
ófundna þessa lind.
Leit þín á liðnum dögum
líkist gulnaðri mynd.
4.
Um sefa þinn svifar trega
- sóttir þú langt yfir skammt?
Hrímið fellur á hár þitt
en haldið skal áfram samt:
5.
Þú veist að vötn eru tærust
þegar veður kólna um haust
sú uppspretta svölust allra
sem undan klaka braust.
6.
Ó finnist sá blikandi brunnur
þá bergir þú endalaust.