Danslilja | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Danslilja

Fyrsta ljóðlína:Við í lund
bls.II 173
Viðm.ártal:≈ 0
Við í lund
lund fögrum, eina stund
sátum síð, sáðtíð
sól rann um hlíð;
hlé var hlýtt þar;
háar og bláar
ljósar og grænar
liljurnar vænar
í laufguðum skans
þar báru sinn krans
sem brúðir með glans
búnar í dans;
doppum dikandi
blöðum blikandi
blómstur ilmandi
við lyktuðum lands;
heyrðum söng, list löng
lék um kvistu frjóa
við urtastöng andföng
útpiplaði lóa
með spóa
munn-mjóa;
kænt við hann kjóa
kváðu gaukar móa;
sungu runnar, bungur, brunnar
bakaði vöngum sunna
við sjóa
með unnar ið fróa;
fagurt var um flóa
formenn voru að róa
hvít blankaði hafs brúna
heið krúna
lands-túna
logn dúna;
liljum þeim er glóa
nam gróa samþróa
kvikur són lék um lón
líkur þótti samtón
við symfón
og sönghörpu-nið um frón.
Gjóði Þundar góð-hróðug undi
glóða sunda rjóð slóð í lundi
hróðurs punda hljóð dundi
hlóðu blundi ljóð sprundi
rjóður stundi, móð mundi
myndað yndi fljóð.