Jólavísur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Jólavísur

Fyrsta ljóðlína:Óska ykkur árs og friðar
Heimild:Skriplur.
bls.32
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Óska ykkur árs og friðar
allrar gæfu um þessi jól.
Elfa tímans áfram niðar
eyðist myrkur, hækkar sól.
2.
Leiki ykkur lánið við
léttrar njótið gleði.
Árið nýja færi frið
farsæld, birtu í geði.
3.
Þegar jólaljósin ljóma
lifnar yfir hug og sál.
Söngvar fagrir sífellt hljóma
samhæft alheims tungumál.
4.
Gjafir margar gefnar eru
gjöfin best og stærst er sú
Jesúbarn í jötu borið
jólafriðinn helgar nú.
5.
Ljós á kertinu lifir
líður að jólanótt.
Andi Guðs vakir yfir
allt verður kyrrt og hljótt.
6.
Vetrartíð þó verði köld
og víða fenni í skjólin.
Ykkur geymi kyrrlát kvöld
og kærleiksrík um jólin.