Leiðarlok | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Leiðarlok

Fyrsta ljóðlína:Lagt er af stað fyrir ljósan dag
Viðm.ártal:≈ 0
1.

Lagt er af stað fyrir ljósan dag
lífið er allt með gleðibrag
þó örlítið andi á móti.
Að dagmálum stiklar í dögg á jörð
minn duglegi fararskjóti
þá skeifurnar glamra við grjóti.
2.
Er ekki lífið svona af og til
eins og nauðsynleg gangnaskil
með alls konar amstri og þrasi?
Eltingaleikurinn fram um fjöll
þó fákurinn kannski hrasi
stundum þá gutlar í glasi.
3.
Bráðlega kólnar og kvöldar að
ég kemst þó um síðir í næturstað
með klárinn minn reista og keika.
Síðasta brekkan er brött og há
það bjarmar á kvöldroðann veika.
Bráðum ég legg á þann bleika.













Athugagreinar

Úr fórum Péturs Ingva Pétursonar læknis.