Kveðið við hest | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Kveðið við hest

Fyrsta ljóðlína:Vekur styrk og veitir frið
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Vekur styrk og veitir frið
vonir rætast mínar
gegnum taum að tala við
tilfinningar þínar.
2.
Eintóm snilld á alla lund
en hvað það var gaman.
Ó, að við mættum yndisstund
eiga marga saman.

3.
Vel ég finn mér væri það
veigamestur auður
ef þú gætir gert mig að

góðum manni, Rauður.