Óskar Sigurfinnsson Meðalheimi - eftirmæli | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Óskar Sigurfinnsson Meðalheimi - eftirmæli

Fyrsta ljóðlína:Hann var bóndi og bragarsmiður
Viðm.ártal:≈ 2022–0
1.
Hann var bóndi og bragarsmiður,
byggði á sínu í Meðalheimi.
Horfði upp en ekki niður,
af honum þá mynd ég geymi.
2.
Fram til góðs hann gekk í öllu,
glettinn vildi að málum standa.
Lagði í ferli ljúfu og snjöllu
lausnir fram á mörgum vanda.
3.
Jákvæð hugsun hjartagæða
honum fylgdi á lífsins vegi.
Svo að andans innistæða
óx þar jafnt að nótt sem degi.
4.
Glæddi fús með hlýju hjarta
hressilegan kveðskap tíðum.
Bjó að gleði innstu arta,
ekki síst í bragarsmíðum.
5.
Þannig vildi hann auka yndi,
örva með því hvers manns dreyra.
Svo að fólki léttist lyndi,
lífið yrði birtumeira.
6.
Hógværð sönn og lítillæti
lýsti best hans sálardyggðum.
Leit hann því úr sínu sæti
sólskin yfir landsins byggðum.
7.
Nú er hann til náða genginn,
njóti hann hvíldar fram að vöku.
Þegar andinn endurfenginn
upp rís hress með góðri stöku.