Miðnætti | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Miðnætti

Fyrsta ljóðlína:Alda rís á Ægi
bls.26
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Alda rís á Ægi
ymur í fjörusteinum.
Hnígur húm á jörðu
hvín í visnum greinum.
Leggjast langir skuggar
lón og voga yfir.
Húmsins vttir hlæja.
Hvílist allt, sem lifir.
2.
Undarlegt er úti.
Innst i heimi nætur
vaka bleikar vofur
vallarblómið grætur.
Draumar allir dafna
dökkvir gnauða vogar.
Kumlum yfir kvikna
kaldir málmalogar.
3.
Svalur máni sveimar
silfurbláar leiðir.
Hafmey úti á hrönnum
hárið bleika greiðir.
Skrímsli skríða í fjörum
skelfa jarðarbúa.
Enginn getur unnið
illra vætta grúa.
4.
Lands og lagarvofur
leika eiga saman
fram við fjörusteina
fremja kuldagaman.
Blautir snekkjubitar
brotna á fölum draugum
köldum kistufjölum
kippt er út úr haugum.
5.
Máninn myrkrum eyðir.
mýkt er í fölu ljósi
sem á hauður hellist
heiðum frá að ósi
- Vötn og velli alla
vofur sveima yfir.
Húmsins vættir hlæja.
Hvílist allt sem lifir.