Formáli | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Formáli

Fyrsta ljóðlína:Við lífið ég tefli mitt tafl
bls.3
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Við lífið ég tefli mitt tafl
en tefli þó aldrei í mát.
Ég legg undir líf mitt og afl
mín ljóð geyma hlátur og grát.
2.
Ég glími við gleymskunnar draug
sem gætir minningafjár
og finn þar sem brotinn baug
hin brotna og týndu ár.
3.
Ég gæfi ykkur guðavín
í gullkerjum Indíalands
ef ég væri Aladín
og ætti lampann hans.