Háfjallaslóðir | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Háfjallaslóðir

Fyrsta ljóðlína:Sólin hátt á himni skín
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Sólin hátt á himni skín
hlýnar foldin öll.
Lifnar ferðalöngun mín
leysir klaka og mjöll.
Fegurð geyma frjáls og merk
fjöllin draumablá.
Ólgar mér í æðum sterk
ævintýraþrá.

2. Viltu koma í Kjalarför
kunna fjallaleið?
Þeyst var forðum eins og ör
yfir Fluguskeið.
Jökulhæðir hillir þar
huldar ísi og mjöll
Kjalhraun, Hrútfell, Kerlingar-
kunn og háreist fjöll.

3.
Kaldadals að kanna leið
kannski förum næst
þar sem Skjaldarbungan breið
birtir formið glæst.
Með Eiríksjökul, Ok og Strút
og eilíft Geitlandssvell.
Jarlhettur við austrið út
einnig Hlöðufell.

4.
Ættum við að eiga leið
yfir Sprengisand.
Firnindin þar birtast breið
bert og nakið land.
Hágöngur í hilling sér
Heklu og Arnarfell.
Tungnafell í bjarma ber
byrgt í jökulsvell.

5. Ódáðahraun ógnar mér
elds í bruna læst.
Herðubreið þar hreykir sér
há og fjalla glæst.
Rísa upp úr auðnum hér
Askja og Dyngjufjöll.
Að baki varnarveggur er
Vatnajökulsmjöll.

6. Öræfin við austrið kennd
eiga töframátt.
Brött og hvera kyngi brennd
Kverkfjöll rísa hátt.
Eyjabakka veröld vís
Vatnajökli næst.
Snæfell yfir auðnir rís
austurfjalla glæst.

7. Öræfanna óskaland
útlaginn sem tróð.
Þar er greypt í gráan sand
gömul sagnaslóð.
Firnindin í fjarska öll
fersk og draumablá.
Enn mig seiðir inn á fjöll
ævintýraþrá.

30.maí 2000