Til fundar við skýlausan trúnað IV | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Til fundar við skýlausan trúnað IV

Fyrsta ljóðlína:Yfir heiðina eigra ég
bls.172
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Yfir heiðina eigra ég
yfirgefin hugrenning þín
og hygg á svefn
í regnvotum mosanum.
2.
Kannski finna mig þreyttir gangnamenn
sem þykjast bera kennsl á mig
einsog draumsýn úr liðinni bernsku
eða stef úr gleymdu kvæði.
3.
og grípa mig glaðbeittum huga:
mynd sem þeir ekki ætluðu að týna -
stef sem nægir þeim
til að kunna kvæðið að nýju.
4.
Því ég hugrenning þín
var einnig ósk þín
um langlífi í landinu
og söng vökumannsins
5.
sem nú virðist hyggja á svefn
í regnvotum mosanum;
þó ég finnist
getur það skeð örskoti of seint.