Viðbúnaður | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Viðbúnaður

Fyrsta ljóðlína:Sláið fram úr í dag því að heyskap er hætt
bls.135
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Sláið fram úr í dag því að heyskap er hætt.
Gefið hrífum og orfum sinn frið.
En í kringum mín hús verði hreinsað og bætt
vegna hennar sem búist er við.
2.
Gerið laglega braut, hreinsið lausmöl og grjót
svo að leiðin sé augunum þekk
og hún steyti hér ekki við steini þann fót
er um strætin í borginni gekk.
3.
Gerið frítt, gerið breitt þetta heimreiðarhlið
til þess hún fari brosleit þar inn.
Lagið grjótið í stéttunum gaflana við
að hún gangi þar auðnuveg sinn.
4.
Burstið veggi og þak, hreinsið vel sérhvern stað
og úr varpanum allt sem er laust
til þess kveðjan sé góð er hún kemur í hlað
- - - ef hún kemur þá nokkuð í haust.