Ung móðir | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ung móðir

Fyrsta ljóðlína:Í yndisleik vorsins
bls.191
Viðm.ártal:≈ 0
Í yndisleik vorsins
milli blóma og runna
situr ung móðir
með barnið á hnjám sér
andlit hennar sól
bros hennar ylhlýir geislar.

Rafael í allri sinni dýrð

Fegurð og góðvild
þetta tvennt og eitt
hvað er umkomulausara
í rangsnúnum heimi

Og þó mest af öllu
og mun lifa allt