Heiðarfriður | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Heiðarfriður

Fyrsta ljóðlína:Sunnangola hlý og hrein
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Sunnangola hlý og hrein
höfgu vaggar blómi.
Bekkur talar tær við stein
tryggum vinarrómi.
2.
Yfir lága ásafjöld
ómar lóukliður.
Upp til heiða hafa völd
hátign, ró og friður.
3.
Bak við hljóða heiðarbrún
háleit fjöllin mæna
aftangull og geislarún
glóir um skalla væna.
4.
Allt er blítt og hlýtt og hljótt
höfgi á hverjum meiði.
Sólbjört kyrrlát sumarnótt
svæfði dal og heiði.