Hálfdán í Felli | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Hálfdán í Felli

Fyrsta ljóðlína:Í Felli klerkur til ferðar býst
bls.23
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Í Felli klerkur til ferðar býst
fjölkunnugum það ægir síst
að hitta þau hamratröllin.
Hinn örvilnaða eiginmann
ætlar að leiða í sannleikann -
að frúin sé gengin í fjöllin.
2.
Séra Hálfdán í hestinn slær
hálfmánans skíma drukknar nær
í kolsvörtu skýjakafi.
Ströndin er háum hömrum girt
haustmyrkrið ríkir dauðakyrrt
á landi og ládauðu hafi.
3.
Á þeysireið um hinn vota veg
vábeiðan mörg og ógurleg
gapir þar undir götu.
Krefur einbeitni, kjark og mátt
að kveinka sér ekki og æpa hátt
þegar skriplar á skötu.
4.
Fordæmdra sveitir flýja í hlé
forða sér inn í húmsins vé
gægjast þar fram úr gættum.
Forynjur víkja úr vegi hans
vald hins upplýsta kennimanns
það ógnar ómennskum vættum.
5.
En konunni fékk ei klerkur náð
kunnáttumannsins þrutu ráð;
hún var gengin af göflum.
Torvelt er fyrir ljóssins lið
lamaða sál að reisa við
spillta af illum öflum.