Föðurlandsást | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Föðurlandsást

Fyrsta ljóðlína:Ég þekki eyju sem eldi gýs
bls.10
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Ég þekki eyju sem eldi gýs
allt er þar mest og best.
Annaðhvort sólin aldrei rís
ellegar varla sest.



2.
Við landið sem forðum líf mér gaf
læst hef ég tryggðaband.
Þó svo að eyjan hverfi í haf
hún er mitt föðurland.