Tvö ein | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Hvað er að þér unga sprund?
Eitthvað lágt þú segir
hættir eftir stutta stund
starir á mig og þegir.
2.
Andar djúpt og ótt í senn
á andlit roði færist
brosa muntu ætla enn
aðeins vörin bærist.
3.
Bráðum höndum bregður þú
bak við hálsinn hvíta
bera mjúka barminn nú
bifast fæ ég líta.
4.
Eldur þér í augum skín
auglýsir þinn vilja
ég er þinn og þú ert mín
það er hægt að skilja.