Sveinbjörn Beinteinsson | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sveinbjörn Beinteinsson

Fyrsta ljóðlína:Sveinbjörn goði er fallinn frá
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Sveinbjörn goði er fallinn frá
fróðleikshetjan klára.
-Svefninn langi seig á brá
svæfði þulinn hára.
2.
Hverfur þar af feðrafold
falslaus vinur ljóða.
Vefur nú hin vígða mold
vökumanninn góða.
3.
Hann var skáld með skerpu og þor
skildi öðrum betur
rök sem láta lífsins vor
lifa í gegnum vetur.
4.
Sextíu og níu æviár
undi á slóðum Draga
íslenskur í húð og hár
heiðursvinur Braga.
5.
Lengi man ég manninn þann
máls í góðu standi.
Nú er enginn eins og hann
eftir hér á landi.



Athugagreinar

Mbl. 26. febr. 1994