Kjarval | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Kjarval

Fyrsta ljóðlína:Sjá opnast hulinn heim
Heimild:Föðurtún.
bls.225
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1940
1.
Sjá opnast hulinn heim.
Sjá hamrabúans lönd
með álfaborgir, turna, torg
og tröllanaust á furðuströnd.
Sjá holla vætti í hverri byggð og sveit
sem horfin öld með skyggnum augum leit.
Frá handarkrika Kjarvals fær
vor kynslóð litið dularverur þær.
2.
Sjá bergsins breiðu dyr
sem blasa gestum við.
Sjá vafurloga um vegg og þil
og veislubúið álfalið.
Á bak við slæðu lita og léttan eim
er ljósaflóð um þennan töfrageim.
Sjá huldubrúði búna í skrúð
við bjarmaflog um tæra kristalsúð.
7.
Sjá steinsins leynda líf
er listin vakið fær
og brunahraunsins hrjúfu sál
er hönd og auga snillings nær.
Sjá heiðamosans mjúka silkiflos
hið milda húm í burknans grýttu kvos.
Sjá ótal djásn um auðnir sands.
Sjá ógn og töfradýrð vors föðurlands.