Haustkvöld | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra
1.
Eg horfi upp í heiðblámans veldi
og hugurinn víða mig ber
á haustdagsins komandi kveldi
kyrrlát hér náttúran er.
Þá lognhúmið læðist um geiminn
og leikur við ströndina mar
þá hyggur minn hugur dreyminn
að hjartfólgnu myndunum þar.
2.
Þó margt hafi gengið á móti
eg mun ekki æðrast af því.
Og þó að eg bátinn minn brjóti
eg byggi hann aftur á ný.
Svo set eg fram sædrekann fráa
og sigli lífs örlögum mót.
Eg held út á hafdjúpið bláa
og hræðist ei öldunnar rót.