Ljóðabréf | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ljóðabréf

Fyrsta ljóðlína:Jónas frændi er flestum betri
bls.259
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1953

Skýringar

Ljóðabréf til Jónasar Jónssonar frá Valadal, bílstjóra í Reykjavík.
1.
Jónas frændi er flestum betri
fjörugur jafnt á sumri og vetri.
Gleði og hlátur hafði í frammi
ég hitti ´ann suður í Fornahvammi

2.
Í bílnum átti ´ann eina tösku
í hana sótti drengur flösku.
Í húsinu hvein af hláturbraki
því hún var full af koníaki.
3.
Á undan mat og eftir drakk ég
aldrei við því hendi stakk ég.
Kneyfði seinna, hvergi í leyni
koníak hjá Hæðarsteini.
4.
Enn var sopið æði stórum
- Ekkert viss´ eg hvert við fórum. -
Er Hrútafjörðinn hillti að baki
hreyft var enn við koníaki.
5.
Numið var ei neitt af skeiði
við Norðurbraut, hjá Jóa á Heiði.
Hrjáður var ´ann af hósta og taki
en hafðist upp á koníaki.
6.
Austur um Þing þó ykist svalinn
um Ásana og Langadalinn
vættir storms þó vængjum blaki
vermdi hann oss á koníaki.
7.
Enn var látið áram hvína.
Árna var eg búinn að týna.
Er fyrir mér ég fór að þreifa
ég fann hann inni í bíl hjá Leifa!
8.
Að Marbæli ég kært hann kvaddi
á koníaki enn hann gladdi
okkur; og máske ei þið trúið
að ekki var það nærri búið.
15.
Blessun hver á bragna er hrynur
berist þér, kæri frændi og vinur
Aldrei víl né víf þér þjaki.
Þú vermir allt á koníaki. 1953