Töfrar | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Töfrar

Fyrsta ljóðlína:Á bláhvítum jökli
bls.86-87
Viðm.ártal:≈ 1950
Flokkur:Skáldsþankar
Á bláhvítum
jökli
í blækyrrð
blys himins
loga:
Eir-rauð
ýr-græn
blý-grá og
bleik.

Hlusta þú
jökull
á hjarta míns
heitustu
þrá:

Leyf mér
í leiftri
líðandi stundar
inn í
helgi þinnar
þagnar -
inn í
ósnortinn
hreinleik
þinna dulheima
að deyja.