Júníkvöld að Beinakeldu | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Júníkvöld að Beinakeldu

Fyrsta ljóðlína:Kvöldið heillar hlýtt og bjart
bls.22
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Kvöldið heillar hlýtt og bjart
hjúpar dali friður
vefur landið vorsins skart
vakir fugla kliður.
2.
Sjáið fjöllin fríð og há
faðma grund og móa
sólargeisla gárum á
gylla Húnaflóa.