Án heitis | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Án heitis

Fyrsta ljóðlína:Þó á hausti feli föl
bls.Úr Degi 25/2 1983
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Þó á hausti feli föl
farin spor á vegi
ætíð kosta eigum völ
enn á næsta degi.
2.
Fenni í sporin frá í gær
fljótt skal önnur marka.
Einhver leið er alltaf fær.
Áfram skulum harka.
3.
Eins í gljúpa moldu má
marka spor á vori.
Enginn sleppur undan þá
að eflast vilja og þori.