Ímynd | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ímynd

Fyrsta ljóðlína:Maðurinn sem sá ekki sköpun heimsins
Viðm.ártal:≈ 2000
1.
Maðurinn
sem sá ekki sköpun heimsins
og hlýddi ekki á þögn ísaldarinnar
það er ég.
2.
Maðurinn
sem fylgdi ekki Leifi heppna
og missti af kristnitökunni
það er ég.
3.
Maðurinn
sem hitti ekki höfund Njálu
og fór á mis við Skaftárelda
það er ég.
4.
Maðurinn
sem er svo lengi að læra
en fljótur að gleyma
það er ég.
5.
Maðurinn
sem er svo lengi að rata
en fljótur að villast
það er ég.
6.
Maðurinn
sem mundar meitilinn
en heggur vankant á steininn
það er ég.
7.
Maðurinn
sem varpar skugga á veginn
og hverfur síðan
það er ég.