Fagri-Hvammur (Hugblær vorsins) | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Fagri-Hvammur (Hugblær vorsins)

Fyrsta ljóðlína:Við sjálfan Ægi hér móðan mynnist
bls.112
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Við sjálfan Ægi hér móðan mynnist
þar mætast armar við bláan sand.
Í köldum straumum hún Kára kynnist
og kröppum bylgjum er herja land.
Þó berjist hrannir, svo björgin skjálfa
ei bugast lætur vor aldna storð.
Hún tryggðir heldur við tröll og álfa
af tökum hafsins ber sigurorð.
2.
Nú lofgjörð flyt ég þér Fagri-Hvammur
þú fóstrar göfgustu jurtir lands
þó vildartíminn oft veitist skammur
og valdið dvínandi ljósgjafans
þá koma sumur með sól í barmi
með svása geisla er verma grund
þeir vaxtarsprotana vefja armi
svo voröld tryggja þeim langa stund.
3.
Þar gista ljúflingar gróðurreitinn
þeir gæða dögg hverja skógarrein
í bliki himins er blíða heitin
þá bragaljós yfir hverri grein.
Vel mjúkar hendur um meiðinn fara
og munarylur um sérhvert blóm
þau atlot munu um aldir vara
því enginn raskar þeim helgidóm.
4.
Í ferska lundinn er ljúft að ganga
um ljósar nætur sem bjartan dag
þar bjarkarkrónur og blómin anga
en blæösp roðnar við sólarlag.
Þar öðlumst drauma við elfarniðinn
um andans björtustu vonarlönd.
Vorsótta færir oss fuglakliðinn
og fjallatindunum geislavönd.
5.
Sjá, dísir vorsins með varma blæinn
þær vekja fræin í gróðurmold.
Af brjóstum móður þær bræða snæinn
svo bjarmi lífið um heiðarfold
Um sálir manna fer sumargleði
er syngur ljómandi vængjahjörð
Við unga hlyninn hjá blómabeði
er bæn til hæða að ljóði gjörð.


Athugagreinar

Fagri-Hvammur er hvammurinn við Blöndu, neðan við veginn, beint undan Barnaskólanum, sem nú er búið að skreyta með trjám og blómum, og þannig hefur hugsjón mín ræst. St.D.