Minningarljóð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Minningarljóð

Fyrsta ljóðlína:Í ljóma dýrðar Djúpivogur er
bls.18/9 2017 bls. 18
Viðm.ártal:≈ 2000

Skýringar

Upphaflega afmælisljóð til móður höfundar, Sigurbjargar Hlöðversdóttur, sem áttræð varð 8. maí 2002 síðan staðfært við lát hennar 31. ág. 2017.
1.
Í ljóma dýrðar Djúpivogur er
það djásn, sem fegurð hverja yfirbauð.
Sú minning hæst í huga okkar ber
sú hjartans fró er veitir lífi auð.
2.
En þar við tindinn fagra og fjallsins rót
þar fæddist sú er okkur lífið gaf.
Um álfakletta hljóp með fiman fót
og fjörusand, er skóp hið úfna haf.
3.
Í fjörum æsku fögur skel var geymd
þó fannst þar aldrei gæfuperlan sú
en engin fannst því ástæðan var gleymd
að eðalperlan hvíta, það varst þú.
4.
Árin liðu, perlan skæra skín
og skín til okkar, lýsir dagsins braut
þá blessun vilja þakka börnin þín
hvert barnið eitt sem þinnar elsku naut.
5.
Við syrgjum þig og söknum líka hans
en saman æ þið greidduð okkar veg.
En það væri ei í anda Mýrarmanns
að mæðast nú og vera á gleði treg.
6.
Nú Búlandstindur tignarlegur skín
og tindrar í kletti álfkonunnar skraut
þá birtu senda beina leið til þín
sú birta skín af þinni ævibraut.