Jeppavísur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Jeppavísur

Fyrsta ljóðlína:Jeppa Íslands – jeppa þinn
bls.35
Viðm.ártal:≈ 1950
Flokkur:Gamankvæði

Skýringar

Höf. orti jeppavísurnar til Ragnars í Smára.
1.
Jeppa Íslands – jeppa þinn
ég vil sjá hann bruna
mínar traðir út og inn
elskulegi Ragnar minn.
Við skulum báðir veðja á fjarstæðuna.
2.
Útálát á okkar skyr
eru þínar gerðir.
Opnar stóðu öngvar dyr
okkar listamönnum fyr
en jeppinn þinn góði hóf sínar frægu ferðir.