Andvökusýnir | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Andvökusýnir

Fyrsta ljóðlína:Oft við rökin undarleg
bls.32/2017 bls. 8
Viðm.ártal:≈ 2025
Flokkur:Skáldsþankar
1.
Oft við rökin undarleg
andvaka um njólu
horfði fast um hulinn veg
Hjálmar skáld í Bólu.
2.
Síst með innri augun blind
opið hugarflæði
sá hann frá sér margt í mynd
mannlífs flókna þræði.
3.
Lífs við breiða sálarsýn
sveif hann ofar kjörum
meðan efni bragar brýn
brunnu heit á vörum.
4.
Leit hann margt á leiðum þeim
lét það hugann næra
fékk þar sýn í hulinn heim
handan landamæra.
5.
Þó við kjörin niðurnídd
neyðin vonum eyddi
andleg sjón um æðri vídd
oft hann þannig leiddi.